Silky Gomtaro 270-8/10 tvítennt sög
Silky Gomtaro 270-8/10 tvítennt sög
Silky Gomtaro 270-8/10 tvítennt sög

Silky Gomtaro 270-8/10 tvítennt sög

Verð 14.450 kr
Virðisaukaskattur innifalinn í verði. Afhendingarmáti er valinn þegar gengið er frá kaupum.

Silky Gomtaro 270-8/10 tvítennt sög og slíður

Art no: 460066

Tvítennt eða tvíblaða sög sem hentar atvinnumönnum, öðrum garðyrkjumönnum og skógarfólki. Hún er gróftennt á framblaði en fíntenntari á bakblaði. Bakið 1,4mm að þykkt er notað til að undirsaga grein (byrjað á að særa börkinn undir greininni til að ekki rifni út úr sári við skurð) og á móti er sagað með grófu framblaði 1,2mm þykku. Með þessu verkfæri er auðvelt að forðast barkarskemdir með undirsögun, ná þannig hreinni skurði án þess það komi niður á afköstum.

Sögin fer vel í hendi og henni fylgir þægilegt beltisslíður, Auðvelt að skipta um sagarblað. 

  • Sagarblað úr hágæða japönsku stáli, nikkel húðað
  • Sagartennur bak:  10 tennur pr 30mm, fíntent
  • Sagartennur fram: 8 tennur pr 30mm, gróftent
  • Lengd sagarblaðs: 270mm
  • Þyngd: 95gr (sög)
  • Slíður fylgir